19 Október 2022 13:20

Skráð voru 786 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í september og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir september 2022.

Tilkynningum um þjófnað fækkaði á milli mánaða. Alls bárust 101 tilkynningar um innbrot í september miðað við 120 tilkynningar í ágúst.

Alls barst 111 tilkynning um ofbeldisbrot í september og fækkaði þessum tilkynningum lítillega á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkaði einnig á milli mánaða. Í september var tilkynnt um 21 kynferðisbrot, sem eru álíka jafn margar tilkynningar og hafa borist síðustu mánuði á undan. Það sem af er ári hafa verið skráð um 16 prósent færri kynferðisbrot á höfuðborgarsvæðinu samanborið við meðaltal á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust 20 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í september en ekki hafa borist jafn margar leitarbeiðnir síðan í september 2021. Heilt yfir hafa borist um 29% færri beiðnir það sem af er ári miðað við síðustu þrjú ár á undan.

Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og var ekkert stórfellt fíkniefnabrot skráð í september. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fækkaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði.

Í september voru skráð 715 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 15 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.