19 Nóvember 2021 14:06

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar miðvikudagsmorguninn 10. nóvember, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 7.12. Þar rákust saman Volkswagen Tiguan og Toyota Auris, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Volkswagen-bifreiðinni var ekið norður Kringlumýrarbraut og Toyotunni frá Skipholti yfir á Háaleitisbraut, en ökumaður hennar hugðist aka yfir gatnamótin og austur Háaleitisbraut þegar áreksturinn varð.

Þau sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið jonatan.gudnason@lrh.is