22 Ágúst 2019 16:22
Í dag hefur verið leitað með sérstökum kafbáti, sem ber tegundarheitið Gavia og er búinn sónarbúnaði og myndavél, í Þingvallavatni að líki manns sem talinn er hafa fallið úr uppblásnum kayak sínum þar við siglingar þann 10. ágúst s.l. Leit kafbátsins er stefnt á tvö fyrirfram skilgreind svæði út frá því hvað skipuleggjendur leitar telja líklegast til árangurs.   Samanlagt nær þetta svæði yfir 1 ferkílómeter og dýpi á því er talið allt að 80 metrar.   Báturinn siglir eftir fyrirfram gefnu mynstri og tekur hvor reitur 5 klst. í skönnun.   Úrvinnsla gagnanna er þá eftir og ljóst að hún mun taka einhverja daga.  Því er ekki að vænta frekari frétta af leitaraðgerðunum að sinni.  Þá er til skoðunar hvort nota megi annarsskonar sónarbúnað við leitina en ekki er tímabært að ræða tímasetningu og umfang slíkra aðgerða að sinni.
 
Lögregla hefur ákveðið að gera nú hlé á formlegri leit.  Fylgst verður sérstaklega með vatninu en komi ekkert nýtt upp munu bakkar þess verða gengnir að 3 til 4  vikum liðnum til að kanna hvort eitthvað henni tengt hafi rekið að landi.