23 Ágúst 2019 11:35

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 20. september á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á vopnuði ráni í austurborginni í lok júlí.  

Eins og fram hefur komið var manni ógnað með skotvopni og hann rændur verðmætum. Lögreglan brást skjótt við enda mál sem þessi litin mjög alvarlegum augum og var farið í markvissar aðgerðir sem leiddu til handtöku fjögurra manna, en þremur þeirra var fljótlega sleppt úr haldi lögreglu. Lögð var fram krafa um gæsluvarðhald yfir þeim fjórða og það hefur nú verið framlengt eins og áður sagði. Framkvæmdar voru húsleitir í þágu rannsóknarinnar og fannst skotvopnið, en það reyndist vera eftirlíking af skammbyssu.