29 Maí 2012 12:00

Rúmlega 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu laugardaginn 9. júní nk. klukkan 13. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið verður haldið í húsnæði Vöku í Skútuvogi 8 í Reykjavík. Væntanlega verður líf og fjör á uppboði lögreglunnar enda á það sér langa sögu og á þeim er jafnan múgur og margmenni.

Á síðasta ári voru tilkynningar um stolin reiðhjól tæplega 650 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er ljóst hvað verður um meirihluta þeirra enda berst aðeins hluti hjólanna til óskilamunadeildar. Algengt er að hjól berist þangað nokkrum mánuðum eftir að þeim var stolið. Eigendunum nægir því sjaldnast að koma bara til lögreglu strax eftir þjófnaðinn, þeir verða líka að koma aftur nokkrum vikum seinna til að fullreyna hvort  hjólin séu í vörslu lögreglu eða ekki.

Samhliða þessu er fólki er bent á mikilvægi þess að geyma reiðhjól á eins öruggum stað og unnt er og alls ekki skilja þau eftir ólæst. Ef illa fer, og hjóli er stolið, getur komið sér vel ef eigandinn hefur raðnúmer (stellnúmer) þess tiltækt. Það auðveldar lögreglu að koma því til skila ef það á annað borð kemur í óskilamunadeild hennar.

Reiðhjólageymsla lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er í Borgartúni 7b í Reykjavík. Hún er opin á þriðjudögum frá kl. 9 – 12. Þar er hægt að tilkynna reiðhjólið stolið ef það finnst ekki í geymslunni. Óskilageymsla lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík. Opið er virka daga frá kl. 8.15 – 15.50. Sími 444-1000. Tilkynningar um týnda muni má senda á netfangið: oskilamunir@lrh.is