30 Júlí 2005 12:00

Þjóðhátíð gengur vel.

Eftir fyrsta sólarhringinn á Þjóðhátíð hafa komið upp 12 fíkniefnamál í Vestmannaeyjum.  Í flestum tilfellum er um neysluskammta að ræða og hafa bæði fundist kannabisefni og amfetamín.  Gífurleg fíkniefnalöggæsla er í Vestmannaeyjum þjóðhátíðardagana og eru fjórir fíkniefnaleitarhundar á svæðinu, en til samanburðar voru tveir leitarhundar í fyrra.  Þrátt fyrir þetta eru málin færri en í fyrra.  Ein líkamsárás hefur verið kærð og einn tekin fyrir meintan ölvunarakstur.  Nóttin var með rólegra móti enda veður einmuna gott þrátt fyrir spár um annað.  Þrír gistu fangageymslur í nótt, tveir vegna fíkniefnamála og einn sem handtekinn var vegna ölvunar og óspekta.  Gestir á Þjóðhátíð eru að nálgast tíu þúsund að sögn mótshaldara og er enn að bætast við í dalinn.