17 Desember 2012 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum hélt uppi eftirliti vegna hugsanlegs  ölvunaraksturs víðs vegar í umdæminu um helgina. Alls voru 167 ökumenn stöðvaðir og er skemmst frá því að segja að allir voru þeir til fyrirmyndar.

Lögregla fagnar þessari niðurstöðu átaksins gegn ölvunarakstri, sem verður fram haldið í umdæminu,  og hvetur vegfarendur til að fara varlega í umferðinni hér eftir sem hingað til.

Svindlarar enn  á ferð

Enn eru brögð að því að hringt sé í fólk og reynt að plata út úr því fjármuni. Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning af þessum toga, þar sem hringt var í konu í umdæminu frá „tækniþjónustu tölvufyrirtækis.“ Hringjandi bað hana um að prófa ýmislegt á netinu, gefa upp ýmsar stillingar og fleira í þeim dúr. Þegar  samtalið hafði staðið í um það bil klukkustund, vildi hringjandinn að konan færi að borga sér. Hún bað hann þá vel að lifa og lagði á. Fleiri svipuð mál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum  að undanförnu.

Full ástæða er til að vara við atvikum af þessu tagi og hefur embætti Ríkislögreglustjóra margsinnis sent út viðvaranir af slíkum tilefnum.