16 Nóvember 2012 12:00

Valnefnd Lögregluskóla ríkisins hefur lokið störfum og voru 43 umsækjendur um skólavist metnir hæfir eftir að hafa staðist inntökupróf og mætt í viðtal hjá valnefndinni.

Með tilliti til áætlaðra fjárheimilda Lögregluskóla ríkisins var lagt fyrir valnefndina að miða við að 20 nemendur kæmu til með að hefja nám við grunnnámsdeild skólans á næsta ári og valdi hún þá sérstaklega en aðrir umsækjendur voru valdir sem varamenn í tiltekinni röð.

Öllum hæfum umsækjendum hefur verið sent bréf þar sem annað hvort kemur fram að þeir séu í hópi þeirra 20 umsækjenda sem valnefndin hefur valið til náms á framangreindum forsendum eða valdir sem varamenn.