29 Maí 2008 12:00

Um 250 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nk. laugardag, 31. maí, klukkan 13.30. Uppboðið verður haldið í húsnæði Króks að Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Að þessu sinni verða nær eingöngu boðin upp reiðhjól enda safnast þau upp hjá lögreglunni sem aldrei fyrr. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. Ef tími vinnst til verða einnig boðin upp verkfæri en þó í litlu mæli.

Væntanlega verður líf og fjör í húsnæði Króks nk. laugardag enda á uppboð lögreglunnar sér langa sögu og á þeim er jafnan múgur og margmenni.