14 Janúar 2009 12:00

Þann 13. janúar s.l. hófu 29 nýnemar nám á fyrstu önn grunnnámsdeildar Lögregluskóla ríkisins. Námið á önninni tekur um fjóra mánuði og í september 2009 fara nemendurnir í fjögurra mánaða starfsþjálfun í lögreglunni. Að starfsþjálfun lokinni, í janúarbyrjun 2010, hefst síðan þriðja önnin og henni lýkur með útskrift í apríl 2010.

Af þessum nýnemum hafa 14 starfað sem afleysingamenn í lögreglunni, allt frá 4 mánuðum til rúmlega tveggja ára. Að þessu sinni er meðalaldur nýnema 24,79 ár, sem er talvert lægra en verið hefur í undanförnum árgöngum. 8 konur eru í hópi nýnemanna eða 27,6%.

13 af nýnemunum hafa lokið stúdentsprófi, þrír þeirra hafa lokið iðnnámi og einn hefur lokið háskólanámi. Starfsreynsla nýnemanna er margvísleg og má sem dæmi nefna afgreiðslustörf, sölumennsku, smíðar, blaðburð, atvinnumennsku í handbolta, fiskvinnslu, sjómennsku og fangavörslu.

Meðal þess sem nýnemarnir hafa sem áhugamál eru íþróttir, útivera, skotveiði, hestamennska, köfun og ferðalög.

Nemendahópurinn í upphafi fyrstu kennslustundar