1 Ágúst 2013 12:00

Nú síðdegis í dag hafði lögreglan í Vestmannaeyjum afskipti af manni á þrítugsaldri í heimahúsi í bænum. Í framhaldi af þeim afskiptum heimilaði maðurinn leit í húsinu og fundust við þá leit tæp 30 grömm af maríhúana sem maðurinn sagði ætlað til eigin neyslu.

Þetta er annað málið þar sem yfir 20 grömm af kannabis finnast á einum sólarhring í Eyjum, en í gærkvöldi fundust 25 grömm á manni á tvítugsaldri sem var á leið til Eyja með Herjólfi.

Lögreglan í Vestmannaeyjum er með mikinn viðbúnað vegna þjóðhátíðarinnar sem hefst formlega á morgun, en í kvöld verður svokallað Húkkaraball í tengslum við upphaf hátíðarinnar.  25 lögreglumenn auk tveggja fíkniefnahunda verða að störfum í Vestmannaeyjum þessa daga.