19 Október 2009 12:00

Á árinu 2008 bárust peningaþvættisskrifstofu embættis ríkislögreglustjóra alls 520 tilkynningar frá tilkynningarskyldum aðilum. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu peningaþvættisskrifstofunnar fyrir árið 2008 sem gefin hefur verið út.

Nær allar tilkynningarnar bárust frá fjármálafyrirtækjum eða 514. Stærsti hluti tilkynninga varðaði fjárhæðir undir 1.000.000 krónur eða 391 tilkynning. Tvær tilkynningar bárust frá endurskoðendum. Engin tilkynning barst vegna gruns um fjármögnun hryðjuverka, en slík tilkynning hefur aldrei borist.  Í inngangi að skýrslunni segir m.a. að mikilvægt sé að íslenskt viðskiptalíf og fjármálakerfi sé meðvitað um hættuna af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Jafnframt skiptir miklu að þessir aðilar geri sér grein fyrir hvernig bregðast beri við þeirri hættu.

„Skortur á aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka getur haft alvarlegar afleiðingar bæði fyrir fjármálafyrirtæki og fjármálakerfið í heild og haft veruleg áhrif á orðspor íslensks fjármálamarkaðar og viðskiptalífs,“ segir og í inngangi skýrslunnar sem nálgast má hér.