25 Október 2017 10:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, við Reykjahlíð í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 164 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á með hraðamælingunni stóð.