2 Febrúar 2015 09:58

Ökumaður, sem ók Reykjanesbrautina um helgina, mældist á 159 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Hans bíður 140 þúsund króna fjársekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Fleiri ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur en þeir fóru sér nokkru hægar heldur en sá ofangreindi.

Þá voru allmargir ökumenn staðnir að því að virða ekki stöðvunarskyldu eða leggja ólöglega.