14 Nóvember 2016 14:09

Erlendur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 163 km. hraða á Reykjanesbraut í gærdag, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund,  kvaðst vera að flýta sér að ná flugi til heimalandsins.  Tveir ökumenn til viðbótar mældust á 139 kílómetra hraða á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og sá fjórði ók á 135 km. hraða á Reykjanesbrautinni.