1 Janúar 2013 15:00

Almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps hefur, eftir ráðgjöf frá snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands, ákveðið að aflétta rýmingu á eftirtöldum svæðum : Reitum 5 og 6 í Súðavík.  Hraun í Hnífsdal og einnig húsum númer 100 og 102 við Seljalandsveg á Ísafirði.  Þá er aflétt rýmingu á bænum Fremstu-Hús í Dýrafirði.

Aðrar rýmingar eru enn í gildi þ.e.a.s. á reit 9 á Ísafirði, Kirkjuból og Höfða í Skutulsfirði, Fremri Breiðadal, Kirkjubóli í Korpudal og Veðrará í Önundarfirði. Þá er enn í gildi rýming á Félagsheimilinu í Hnífdal og sömuleiðis Heimabæ í Hnífsdal.

Fundur með snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands er fyrirhugaður fyrir hádegi á morgun.

Akstursleiðir milli þéttbýlisstaða á Vestfjörðum eru greiðar, utan þess að mokstur í Ísafjarðardjúpi stendur enn yfir.

Nánari upplýsingar um færð á vegum vísast á vef Vegagerðarinnar, vegagerdin.is, og upplýsinga stofnunarinnar, sem er 1777.