28 Ágúst 2009 12:00

Upp á síðkastið hefur borið á því að íslenskum aðilum hafi borist sendibréf frá konu að nafni Marie de Fortune, P.O. Box 40388, NL3504 AD Utrecht, The Netherlands, þar sem hún býður fram á fjárhagslega aðstoð.

Bréfin eru stíluð persónulega á fólk, með nafni og heimilisfangi.  Í þeim er mynd af tékka að fjárhæð US$ 23.750.00.  Marie segist munu senda viðtakanda þessa fjárhæð en fyrst þurfi hún að fá beiðni þar um.  Er viðtakandi beðinn um að fylla út eyðublað sem fylgir sendibréfinu og senda til baka ásamt greiðslu að upphæð US$ 45 fyrir kostnaði.  Eftir það verði tékki að upphæð US$ 23.750.00 sendur til viðtakanda, til að framselja og skipta í banka.

Tilboð sem þessi tengjast oftast fjársvikastarfsemi og er full ástæða til að vara fólk við að svara þeim.