30 Desember 2011 12:00

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda helstu brota árið 2011. Hafa ber þann fyrirvara á þessum upplýsingum að tölur fyrir árið 2011 eiga enn eftir að breytast. Þessar upplýsingar gefa þó innsýn í það hvert stefnir.Fram kemur að á höfuðborgarsvæðinu fækkaði hegningarlagabrotum um 18 prósent samanborið við 2010. Innbrotum fækkaði um 35 prósent árið 2011 frá árinu á undan. Miðað við þessar tölur voru framin um fjögur innbrot á dag á höfuðborgarsvæðinu árið 2011 samanborið við sex á dag árið áður. Að meðaltali voru framin 10 innbrot á viku í heimili á árinu 2011. Kynferðisbrotum fækkaði um 17,5 prósent á milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Ofbeldisbrotum fækkaði um 22,5 prósent, en að meðaltali var tilkynnt um 12 líkamsárásir í hverri viku á árinu sem er að líða. Tæpur helmingur allra ofbeldisbrota á sér stað í miðborg Reykjavíkur í kringum skemmtanahald um helgar. Minniháttar skemmdarverkum fækkaði nokkuð frá árinu á undan.Umferðarlagabrotum fækkaði verulega milli ára, einkum hraðakstursbrotum. Einnig fækkaði brotum vegna ölvunar við akstur en á sama tíma fjölgaði brotum þar sem ekið var undir áhrifum ávana- og fíkniefna.Fíkniefnabrotum fjölgaði um 12 prósent milli ára. Lögreglan og tollgæslan á höfuðborgarsvæðinu lögðu hald á meira magn fíkniefna árið 2011 en árið á undan. Amfetamín var þar mest áberandi, en 30 kíló af amfetamíni voru haldlögð árið 2011 samanborið við hátt í átta kíló í fyrra. Um 48 þúsund e-töflur voru haldlagðar á árinu samanborið við 15 þúsund í fyrra. Mun minna magn af hassi var haldlagt en af marijúana var haldlagt tveimur kílóum meira en í fyrra.

Nánari upplýsingar má finna í meðfylgjandi skýrslu með því að smella hér.