26 Febrúar 2013 12:00

Afbrotatíðindi fyrir janúarmánuð eru nú komin út. Þar kemur meðal annars fram að tilkynnt kynferðisbrot gegn börnum voru 42 í janúar 2013  sem eru óvenjumörg mál miðað við þróun síðustu ára.

Afbrotatíðindi ríkislögreglustjóra á árinu 2013 eru með aðeins öðru sniði en fyrri ár. Umfjöllunin sem birtist efst í afbrotatíðindunum er breytileg, en þar er reynt að bregðast við umræðunni í samfélaginu hverju sinni eða birtar upplýsingar sem taldar eru gagnlegar fyrir almenning. Myndirnar fjórar sem birtast neðst munu hins vegar vera settar fram með sama hætti, en eru uppfærðar í hverjum mánuði.

Afbrotatíðindin í heild sinni má nálgast hér.