21 Ágúst 2012 12:00

Afbrotatíðindi fyrir júlímánuð eru komin út. Þar eru birtar tölur um brot fyrir júlímánuð auk þess sem beint er sjónum að ákveðnum brotaflokk sem hefur verið í umræðunni eða talið er gagnlegt að fjalla um sérstaklega.

Í afbrotatíðindunum kemur m.a. fram að um 40% eignaspjalla frá árinu 2011 áttu sér  stað um helgar, en stór hluti þeirra var framinn á nóttunni. Flestar tilkynningar til lögreglu um nytjastuld áttu sér hins vegar stað á föstudögum og laugardögum árið 2011, eða um þriðjungur þeirra, flest undir morgun (milli 6 og 12 á hádegi).

Afbrotatíðindin í heild sinni má nálgast hér.