17 September 2007 12:00

Afbrotatölfræði fyrir ágústmánuð hefur nú verið birt á vef ríkislögreglustjóra www.rls.is/tolfraedi.  Þar má m.a. finna fjölda brota í tilteknum brotaflokkum fyrstu átta mánuði ársins; rán, brot gegn valdstjórninni og brot þar sem ökumaður er tekinn fyrir að vera undir áhrifum ávana- eða fíkniefna. Einnig kemur fram í skýrslunni fjöldi hraðakstursbrota sem hraðamyndavélar í Hvalfjarðargöngum, Hvalfjarðarsveit og á höfuðborgarsvæðinu skráðu í ágúst síðastliðnum.

Skýrsluna má nálgast hér.