21 Desember 2012 12:00

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvembermánuð 2012 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um þau tilteknu brot sem tilgreind eru í stefnu LRH og hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina það sem af er ári og á síðustu 13 mánuðum auk þess sem sjónum er beint að þróuninni á svæðum embættisins.

Í skýrslunni má m.a. lesa að tilkynntum innbrotum fækkaði fimmta mánuðinn í röð og voru 57 í nóvember en þau hafa aldrei verið færri í einum mánuði frá upphafi talninga. Á sama tíma á síðasta ári voru þau ríflega tvöfalt fleiri. Á meðan innbrotum í heimili, stofnanir og verslanir fækkaði þá fjölgaði innbrotum í ökutæki og fyrirtæki.

Skýrsluna má nálgast hér.