18 Október 2012 12:00

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir septembermánuð 2012 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um þau tilteknu brot sem tilgreind eru í stefnu LRH og hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina það sem af er ári og á síðustu 13 mánuðum auk þess sem sjónum er beint að þróuninni á svæðum embættisins.

Í skýrslunni má m.a. lesa að þjófnaðir voru 285 í september og fækkaði þeim nokkuð frá ágústmánuði. Þetta eru færri þjófnaðir en hafa verið tilkynntir í einum mánuði frá því í desember 2007. Mest fækkun varð á reiðhjólaþjófnuðum og hnuplmálum.

Skýrsluna má nálgast hér.