3 Júní 2014 12:00

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maímánuð 2014 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Það sem af er ári hafa borist 325 tilkynningar um innbrot á höfuðborgarsvæðinu, sem eru nokkuð færri tilkynningar en á sama tíma síðastliðin þrjú ár. Tilkynnt var um nokkuð fleiri heimilisofbeldismál í maí en undanfarna mánuði, og hefur tilkynningum fjölgað um fjórðung samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Mikil fjölgun var á tilkynningum um nytjastuld vélknúinna farartækja á milli mánaða og hefur fjöldi tilkynninga ekki verið meiri í einum mánuði frá því í ársbyrjun 2012. Í maí tók lögreglan í notkun nýja hraðamyndavél sem hefur nýst við eftirlit með umferðalagabrotum við gatnamót, sem skýrir aukinn fjölda umferðalagabrota á höfuðborgarsvæðinu í maí. Alls voru 2.687 umferðarlagabrot skráð í maí sem er töluverð fjölgun milli mánaða. Umferðarslysum fjölgaði í maí og hefur fjöldinn ekki verið meiri í einum mánuði frá því í nóvember 2010.

Skýrsluna má nálgast hér.