11 Desember 2014 12:00

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvembermánuð 2014 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Tilkynntum þjófnuðum heldur enn áfram að fækka í nóvember. Skýrist fækkunin helst á færri hnuplmálum sem og færri reiðhjólaþjófnuðum. Ofbeldisbrotum fjölgaði nokkuð á milli mánaða og hefur slíkum málum fjölgað töluvert það sem af er ári miðað við fyrri ár. Sérstaklega má sjá fjölgun á ofbeldisbrotum gagnvart lögreglumönnum. Níu slík tilvik voru skráð í nóvember, en fjöldinn sveiflast nokkuð á milli mánaða. Nytjastuldum ökutækja fjölgar ennþá og hafa ekki borist eins margar tilkynningar í einum mánuði síðan í nóvember 2011. Eins varð töluverð aukning á meiriháttar eignaspjöllum í mánuðinum, en sjö slík tilvik komu inn á borð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nóvember.

Skýrsluna má nálgast hér.