22 Ágúst 2013 12:00

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júlímánuð 2013 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um þau tilteknu brot sem tilgreind eru í stefnu LRH og hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina það sem af er ári og á síðustu 13 mánuðum auk þess sem sjónum er beint að þróuninni á svæðum embættisins.

Þjófnuðum hefur fækkað um 9% samanborið við sama tímabil árið 2012 og innbrotum um 18%, eignaspjöllum um 13% og ofbeldisbrotum hefur fækkað um þrjú prósent. Umferðarslysum fjölgaði um 11% á milli ára. Tilkynnt var um 286 þjófnaði í júlí sem er fækkun fjórða mánuðinn í röð. Á sama tíma á síðasta ári voru brotin um 417. Eftirtektarvert er að fjöldi tilkynninga um hnuplmál var næstum tvöfalt meiri í júní en í júlí.  Þá fækkaði innbrotum fjórða mánuðinn í röð og einnig fækkaði þjófnaði á eldsneyti. Þjófnuðum á gsm símum fjölgaði, svo og reiðhjólaþjófuðum og þjófnuðum á skráningarmerkjum. Umferðarslys voru 36 í júlí sem er nokkur fjölgun frá síðasta mánuði og næstum tvöfalt meiri fjöldi en á sama tíma á síðasta ári.

Skýrsluna má nálgast hér.