22 Október 2002 12:00

Á 71. allsherjarþingi Interpol, sem nú stendur yfir í Kamerún, var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta þátttökuríkja, að Afghanistan og Austur-Tímor gerðust aðilar að alþjóðasamstarfi lögreglu, Interpol.   Þar með eru aðildarríki Interpol orðin 181.

Allsherjarþingið sitja að þessu sinni 455 fulltrúar frá 139 löndum, þar á meðal frá Íslandi.    Meginumfjöllunarefni þingsins eru ráðstafanir tengdar baráttunni gegn hryðjuverkum í heiminum, auk þess sem nýtt samskiptakerfi Interpol verður kynnt.

Hægt er að kynna sér nánar dagskrá allsherjarþings Interpol á vefslóðinni www.interpol.int