12 Janúar 2022 12:19

Lögreglan á Suðurnesjum beinir þeim tilmælum til þeirra sem fara um Reykjanesbrautina að aka gætilega en í rigningartíð safnast vatn fyrir í rásum í slitnu malbikinu.   Við slíkar aðstæður þurfa ökumenn að gæta sérstakrar varúðar vegnu hættu á að bílar missi vegfestu.