20 Júní 2007 12:00

Ökumaður sem leið átti um Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar hann ók fram úr skjaldböku sem leið átti um veginn á tólfta tímanum í dag (og sennilega fram eftir degi, hefði ekki komið til afskiptanna).  Skjaldbakan, sem vegur 1.2 kg., var á hægri ferð norður veginn en þarna er 60 km. hámarkshraði.  Skjaldbökunni var boðið far á lögreglustöðina á Ísafirði hvar hún hvíldi lúin bein.  Ekki er vitað hvaðan skjaldbakan kom en grunur leikur á að hún hafi stungið eiganda sinn af. Náttúrustofa Vestfjarða fékk dýrið til varðveislu, en eins og flestir vita er innflutningur slíkra dýra bannaður.