21 Desember 2006 12:00

Vatnsrennsli í Hvítá við Fremstaver hefur minnkað mikið frá því í gær og er nú innan við 600 rúmmetrar á sekúndu sem er innan við helmingur þess rennslis sem var mest í gær.   Við Brúarhlöð hefur vatnsborð lækkað um 2 metra á tímabilinu frá kl. 02:00 í nótt til 07:00 í morgun.  Hinsvegar fer vatnsborð ennþá hækkandi neðar í sýslunni og  við Snæfoksstaði hefur vatnsborð hækkað um 30 cm á sama tíma.  Búast má við að vatnsborð í Ölfusá við Selfoss hækki enn og það vatnsmagn haldist fram á kvöld og jafnvel lengur.

Slökkvilið og björgunarsveitir ásamt starfsmönnum áhaldahúss eru í viðbragðsstöðu og björgunarsveitir eru á leið upp á Skeið að bjarga hrossum sem þar eru í vatni. Til þess eru notaðir tveir bátar.

Foreldrar eru hvattir til að gæta þess að börn fari sér ekki að voða á árbökkum.