3 Október 2007 12:00

Nemendur í 1. bekk Grunnskóla Seltjarnarness hófu í dag formlega verkefnið Göngum í skólann með því að ganga með Ríkislögreglustjóra, bæjarstjóra Seltjarnarness, kennurum og fleirum í nágrenni skólans.  Í um 40 löndum víðs vegar um heiminn ganga nemendur og foreldrar í skólann í októbermánuði – en Göngum í skólann-dagurinn er 3. október.

Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla en með því hreyfa allir sig meira, minni umferð verður við skólana og ganga um hverfið vekur fólk til vitundar um sitt nánasta umhverfi og öryggi í umferðinni.

Ísland tekur nú í fyrsta sinn þátt í þessu alþjóðlega verkefni en á síðasta ári tóku milljónir barna þátt í verkefninu í um fjörutíu löndum víðs vegar um heim.  Bakhjarlar Göngum í skólann eru Lýðheilsustöð, Umferðarstofa (ásamt móðurskólum í umferðarfræðslu), Ríkislögreglustjóri, Menntamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Heimili og skóli.

Lögreglan er þátttakandi í þessu verkefni og mun leggja sérstaka áherslu á eftirlit með umferð í nágrenni við skóla þar sem búast má við auknum fjölda barna gangandi til og frá skóla í október.

Allir grunnskólar í landinu hafa verið hvattir til að taka þátt í Göngum í skólann og skrá skólann til leiks.

Heimasíða verkefnisins er: www.gongumiskolann.is