28 Desember 2012 12:00

Rétt fyrir klukkan tvö í dag barst lögreglu á Selfossi tilkynning um alvarlegt köfunarslys í Silfru á Þingvöllum.  Einn maður mun hafa misst meðvitund í gjánni.   Á þessari stundu er ekki hægt að veita frekari upplýsinga um líðan kafarans né hvað gerðist.  Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir eru á staðnum.  Þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu.