21 September 2010 12:00

Alvarlagt umferðarslys varð fyrir stuttu á Biskupstungnabraut skammt sunnan við gatnamót Biskupstungnabrautar og Laugarvatnsvegar.  Tilkynning um slysið barst til lögreglu kl. 10:25.  Þarna hafði stór fólksbifreið með sex manns oltið á veginum.  Þrír eru taldir mikið slasaðir.  Tveir verða fluttir með þyrlu á slysadeild Landspítala og einn með sjúkrabíl.  Þrír minna slasaðir verða fluttir með sjúkrabílum á heilsugæslustöðina á Selfossi til aðhlynningar.    Vegna slyssins hefur Biskupstungnabraut verið lokað á milli Minni Borgar og Svínavatns.  Umferð hefur verið beint um Sólheimaveg.  Vegurinn verður lokaður þar til lögreglurannsókn verður lokið á vettvangi.  Í bifreiðinni voru sex erlndir ferðamenn á ferðalagi.  Á þessari stundu er ekki vitað um hversu alvarleg meiðslin eru.