7 Júní 2009 12:00

Á sjötta tímanum í morgun var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys  í botni Súgandafjarðar.  Þar hafði bifreið hafnað utanvegar og ökumaður slasast mjög alvarlega.  Ökumaður var einn í bifreiðinni og var hann fluttur með sjúkraflugvél frá  Ísafirði á Landspítala/háskólasjúkrahús í Reykjavík.  Samkvæmt upplýsingum lækna er maðurinn í lífshættu.  Málið er í rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum.