4 Maí 2023 18:31

Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti ungrar konu stendur enn yfir. Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa í tengslum við rannsókn málsins sætt gæsluvarðhaldi síðan 29. apríl sl., eins og áður hefur komið fram.

Nú fyrir stundu tók lögreglustjóri ákvörðun um að aflétta gæsluvarðhaldi yfir öðrum karlmanninum.  Krafa hefur verið lögð fram fyrir héraðsdómi um að hinn karlmaðurinn sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi, á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Sem fyrr mun lögregla setja út tilkynningar hér á vefnum þegar tilefni er til.