18 Október 2013 12:00

Lögreglu hafa borist upplýsingar um að maður hefði orðið fyrir árás þriggja grímuklæddra manna að kvöldlagi á tímabilinu 25. til 27. september síðastliðinn.  Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að mennirnir réðust inn á heimili mannsins á Stokkseyri og börðu hann með barefli með þeim afleiðingum að hann fingur- og handarbrotnaði.  Lögregla hefur ekki fengið neinar vísbendingar um hverjir árásarmennirnir voru né hver tilgangurinn var.  Málið er í rannsókn og ef einhver veita meira en lögregla nú þegar þá eru upplýsingar mótteknar í síma lögreglunnar á Selfossi í síma 480 1010.