16 Apríl 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árekstri sem varð á bifreiðastæði við  Suðurhóla 35e í Breiðholti aðfaranótt sunnudagsins 14. apríl. Þar var ekið á kyrrstæðan Renault Megane, en sá sem það gerði lét sig hverfa af vettvangi.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um áreksturinn og/eða tjónvaldinn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Tjónvaldurinn er jafnframt hvattur til að gefa sig fram.

Eins og sjá má er bíllinn mikið skemmdur.