13 Júlí 2011 12:00

Mörg erfið og krefjandi verkefni komu til úrlausnar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Um þau má lesa í ársskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 2010 en í henni er farið yfir helstu málin sem voru til rannsóknar hjá embættinu. Í skýrslunni er að finna sitthvað fleira áhugavert en almennt má segja að vel hafi gengið á flestum sviðum starfseminnar. Smellið hér til að lesa ársskýrsluna.

Þess skal getið að tölfræði embættisins verða gerð ítarleg skil í annarri skýrslu, Afbrot á höfuðborgarsvæðinu, sem kemur út síðar á árinu.