10 Ágúst 2012 12:00

Þrisvar sinnum kom til þess að grípa þurfti til neyðarlendingar flugvéla á Keflavíkurflugvelli á síðasta ári vegna óláta farþega um borð. Í einu tilvikanna þurfti að yfirbuga farþega í vélinni. Þá voru átján neyðarlendingar á vellinum á  árinu vegna veikinda farþega um borð. Þetta  kemur fram í ársskýrslu lögreglustjórans á Suðurnesjum fyrir árið 2011, þar sem meðal annars er farið yfir margvísleg verkefni lögreglu í umdæminu. Skýrsluna í heild má lesa hér .