11 Mars 2007 12:00

Fréttatilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum

Laugardaginn 10. mars 2007 lagði lögreglan á Suðurnesjum ásamt fíkniefnadeild tollstjórans á Suðurnesjum og sérsveit og greiningardeild Ríkislögreglustjórans í skipulagða lögregluaðgerð gegn meintum dreifingar-og söluaðilum fíkniefna á Suðurnesjum.  

Þetta er viðamesta lögregluaðgerð að þessum toga sem framkvæmd hefur verið á Suðurnesjum. Þegar mest var komu samtals 36 lögreglumenn og 4 tollverðir með tvo fíkniefnaleitarhunda að aðgerðunum þegar farið var í 5 húsleitir á sama tíma snemma á laugardagskvöldinu.  Í öllum þessum húsleitunum fundust fíkniefni og voru níu aðilar handteknir og yfirheyrðir vegna meintra fíkniefnabrota.  Samtals var lagt hald á um það bil 135 gr. af hassi, 65 gr. af hvítu efni og 10 e-töflur.

Uppúr miðnætti var farið í eina húsleit til viðbótar og þar voru 3 menn handteknir, en þar voru haldlögð 10 gr. af hassi og 1 gr. af amfetamíni.

Farið var á skemmtistaði í embættinu þar sem framkvæmd var líkamsleit á um það bil 20 einstaklingum sem grunaðir voru um vörslu fíkniefna og fundust á einum 2 gr. af amfetamíni.

Segja má að þessi lögregluaðgerð sé lýsandi fyrir breytingar sem urðu um áramótin við sameiningu lögregluembætta í landinu.   Lögreglan á Suðurnesjum mun leggja mikla áherslu á að ná tökum á brotastarfsemi sem tengist fíkniefnabrotamönnum sem hafa því miður verið of fyrirferðamikilir í umdæminu á undanförnum misserum.   Lögð verður áhersla á aukna samvinnu á milli lögregluliða og er þessi aðgerð dæmi um vel heppnaða samvinnu.

Lögreglan leitar til almennings um að koma upplýsingum sem hann býr yfir um meint fíkniefnabrot í síma 420-1880 eða á netfang lögreglunnar á Suðurnesjum logreglan@dc.is