30 Nóvember 2007 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur hafið sérstakt átak gegn ölvunarakstri sem mun standa til áramóta. Skipulegu eftirliti verður haldið úti á ýmsum tímum sólarhrings og á mismunandi stöðum í umdæminu. Markmið átaksins er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunarakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni.

Þá stefnir lögreglan að auknu sýnilegu eftirliti á og við stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu, inni í íbúðahverfum og við verslunarmiðstöðvar. Þannig muni lögreglan leggja sitt af mörkum til að íbúar og aðrir sem dvelja á höfuðborgarsvæðinu geti átt ánægjulegar stundir við jólaundirbúning á komandi vikum.