9 Febrúar 2009 12:00

Fréttastofa RÚV flutti föstudaginn 6. þ.m. frétt þess efnis að ríkislögreglustjóri hafi ætlað að flytja til landsins brynvarðar óeirðabifreiðar þegar mótmælin stóðu sem hæst í Reykjavík og að talsverður áherslumunur hafi verið á afstöðu embættisins og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um hvernig taka ætti á mótmælendum og hafi ríkislögreglustjóri viljað ganga miklu harðar fram.  Ríkislögreglustjóri sendi sama dag út fréttatilkynningu til þess að leiðrétta rangfærslur sem fram komu í umfjöllun RÚV sem finna má á lögregluvefnum. 

Nú hefur Landssamband lögreglumanna af sama tilefni sent frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla.

Yfirlýsinguna má nálgast hér.