1 Desember 2009 12:00

Vegna umfjöllunar DV í gær um að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekki brugðist við peningaþvættistilkynningu árið 2006 með lögreglurannsókn gagnvart nafngreindum manni  hefur embættið kannað málið. Niðurstaðan er sú að embættinu barst ekki  tilkynning á grundvelli laga um peningaþvætti eða upplýsingar í formi kæru um þau atvik sem eru tilefni fréttar blaðsins.