31 Janúar 2017 12:37

Átta ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 132 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Annar sem ók vel yfir 100 km. hraða þar sem hámarkshraði er 70 km. gat ekki framvísað ökuskírteini þegar hann var beðinn um það.

Þá var einn ökumaður til viðbótar færður á lögreglustöð vegna gruns um ölvunarakstur og enn annar ók sviptur ökuréttindum.