25 Júlí 2022 12:18
Eftirfarandi breytingar á umferðarskipulagi í Vestmannaeyjum taka gildi kl. 13:00 föstudaginn 29. júlí nk. og gilda til kl. 19:00 mánudaginn 1. ágúst nk.:
– Hámarkshraði á Dalvegi verður lækkaður úr 50 km/klst. í 15 km/klst. og framúrakstur bannaður.
– Umferð um Dalveg verður einungis leyfð til að leggja í bifreiðarstæði og til að skila og sækja fólk.
– Akstur stærri ökutækja verður bannaður um Dalveg nema fyrir ökutæki til fólks- eða vöruflutninga á vegum þjóðhátíðarnefndar.
– Hámarkshraði á Hamarsvegi frá Áshamri að Brekkugötu verður lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst.
– Bifreiðastöður verða einungis heimilar á sér merktum bifreiðarstæðum. Búast má við að bifreiðar, sem lagt verður utan merktra bifreiðastæða verði fjarlægðar og teknar í vörslu lögreglu á kostnað eiganda
Þar sem gera má ráð fyrir að bifreiðarstæði verði mjög takmörkuð við Dalveg er þjóðhátíðargestum bent á sérstaklega merkt bifreiðarstæði í nágrenni við Herjólfsdal á öðrum merktum svæðum sem auglýst hafa verið.
Vestmannaeyjum 20. júlí 2022
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum.