15 Nóvember 2012 12:00

Fulltrúar greiningardeildar ríkislögreglustjóra sóttu í nóvembermánuði ráðstefnu í Svíþjóð um skipulagða glæpastarfsemi.

Boðað var til ráðstefnunnar í framhaldi af fundi ríkislögreglustjóra Norðurlanda.

Á ráðstefnunni var ákveðið að auka enn frekar samstarf landanna hvað varðar baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mögulegum umsvifum hryðjuverkamanna.

Þá voru rædd viðbrögð á Norðurlöndum með tilliti til voðaverka norska hryðjuverkamannsins Anders Breiviks. Lögð var áhersla á getu lögregluliða til að bregðast við slíkum atburðum og mikilvægi þess að Norðurlöndin skiptist á upplýsingum sem að gagni geta komið.