15 Ágúst 2013 12:00

Aukin verkefni lögreglu tengd erlendum ríkisborgurum

Stöðug aukning hefur verið á verkefnum lögreglu tengdu fólki með erlent ríkisfang síðustu þrjú árin.

Þegar talað er um verkefni er ekki átt við afbrot heldur skylduverkefni og aðstoð sem lögregla veitir t.d. vegna slysa, leitar af fólki o.s.f.v. Erlendur ríkisborgari getur verið búsettur hér á landi tímabundið en ekki haft íslenskt ríkisfang eða verið ferðamaður hér á landi.

Aukning hefur verið á verkefnum tengdum fólki með erlent ríkisfang allt árið um kring en ekki verið bundin við sumartímann. Í heildina hafa verkefnin aukist um 10%-12% á ári frá 2010.

Afbrotatíðindin í heild sinni má nálgast hér.