17 Desember 2020 09:20

Um hálf tíuleytið í gærkvöldi kom lítil aurspýja niður á milli tveggja rýmdra húsa í lækjarfarvegi við Botnahlíð á Seyðisfirði. Hún hélst í farveginum að götunni en náði inn á og yfir götuna. Ekkert tjón sjáanlegt.

Veðurspá gerir ráð fyrir aukinni úrkomu á Austurlandi með morgninum.  Af þeim sökum telst ekki óhætt að fara inn á rýmingarsvæðið að sinni. Næstu tilkynningar er að vænta um klukkan hálf ellefu í birtingu. Frekari upplýsinga má og finna hjá vettvangsstjórn aðgerða í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs frá klukkan átta.