18 Desember 2020 07:31

Mikil úrkomuákefð hefur verið á Seyðisfirði í gærkvöldi og í nótt. Í gærkvöldi voru þau svæði þar sem fólk í húsum var beðið um að gæta varúðar stækkuð. Í nótt féllu tvær skriður úr Nautaklauf sem er sami farvegur og stærsta skriðan á þriðjudaginn féll úr. Fyrri skriðan féll upp úr klukkan eitt og önnur skriða um tveimur tímum seinna. Sú skriða tók með sér mannlaust timburhús og flutti um 50 m. Það hús var innan svæðis sem hafði verið rýmt. Í kjölfarið var staðan endurmetin og nokkur hús til viðbótar rýmd.

Búist er við að fari að draga úr úrkomuákefð þegar líður á morguninn og vonir standa til að ástandið skáni við það en svo gæti bætt í úrkomu seinnipartinn.  Spáð er að stytti upp þegar líður á morgundaginn.

Vegna aðstæðna eru íbúar beðnir um að fylgjast vel með fréttum og vera ekki á ferðinni fyrr en í birtingu.