18 Desember 2020 11:57

Heldur hefur bætt í úrkomu á Seyðisfirði. Hreinsunarstarf gengur því hægt þar sem mörg svæði eru enn lokuð. Vinna er þó í gangi og metið reglulega hversu mikið og hratt hægt er að stækka vinnusvæðið.

Ekki þykir enn óhætt fyrir íbúa á rýmingarsvæðum að huga að húsum sínum. Það er þó til mats einnig og verður kynnt um leið og það þykir óhætt. Íbúar annars hvattir til að leita frekari upplýsinga hjá vettvangsstjórn í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs.